samband við þjónustumiðstöð til að fá
nýja inntaksslöngu.
• Þú getur lengt tæmingarslönguna í allt
að 400 cm. Hafðu samband við
viðgerðarþjónustuna til að fá hina
tæmingarslönguna og framlenginguna.
Notkun
AÐVÖRUN! Hætta á meiðslum,
raflosti, eldi, bruna eða
skemmdum á heimilistækinu.
• Þetta heimilistæki er eingöngu ætlað til
heimilisnota.
• Fylgdu öryggisleiðbeiningunum á
umbúðum þvottaefnisins.
• Settu ekki eldfim efni eða hluti sem eru
blautir af eldfimum efnum í, nálægt eða
á heimilistækið.
• Gakktu úr skugga um að allir málmhlutir
hafi verið fjarlægðir úr þvottinum.
• Þvoðu ekki fataefni sem eru mjög óhrein
af olíu, feiti, eða öðrum fitugum efnum.
Það getur skemmt gúmmíhluta
þvottavélarinnar. Forþvo skal slík
fataefni í höndunum áður en þeim er
hlaðið í þvottavélina.
• Snertu ekki glerið í hurðinni á meðan
þvottakerfi er í gangi. Glerið getur orðið
heitt.
Þjónusta
• Hafðu samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð til að gera við
heimilistækið.
• Notaðu eingöngu upprunalega varahluti.
Förgun
AÐVÖRUN! Hætta á meiðslum
eða köfnun.
• Aftengdu heimilistækið frá rafmagns- og
vatnsinntaki.
• Klipptu rafmagnssnúruna af upp við
heimilistækið og fargaðu henni.
• Fjarlægðu hurðarlokuna til að koma í
veg fyrir að börn eða gæludýr lokist inni í
tromlunni.
• Fargaðu heimilistækinu í samræmi við
staðbundnar kröfur um förgun
úrgangsrafmagns- og rafeindabúnaðar
(WEEE).
ÍSLENSKA 7
Commentaires sur ces manuels