smurða eggjabökuformið og pikkaðu með
gaffli. Hreinsaðu ávöxti, fjarlægðu kjarna
og steina og settu í litlum bitum eða
sneiðum ofan á deigið. Settu malaðar
möndlur, egg, sykur og mjúkt smjör í skál og
þeyttu saman. Settu síðan ofan á ávöxtinn
og jafnaðu út.
• Tími í heimilistækinu: 50 mínútur
• Hillustaða: 1
Ristuð eplakaka ömmu
Hráefni:
• 250 g smjör
• 250 g sykur
• 1 pakki vanillusykur (um það vil 8 g)
• 1 klípa salt
• 100 g marsipan
• 5 egg
• 500 g hveiti
• 1 pakki lyftiduft (um það vil 15 g)
• 1 poki piparkökukrydd (um það bil 20 g)
• 50 g kakóduft
• 150 ml rauðvín
• 1,2 kg af eplum
Aðferð:
Settu smjör, sykur, vanillusykur og salt í
hræriskál og þeyttu þar til verður dúnkennt.
Bættu við marsipan skorinn í litla bita og
þeyttu þar til orðið mjúkt. Bættu eggjunum í
einu og einu og þeyttu þar til dúnkennt.
Bættu hveiti, lyftidufti, piparkökukryddi og
kakódufti út í blönduna. Hrærðu rauðvíninu
saman við. Settu deigið í djúpa ofnskúffu
sem fóðruð er með bökunarpappír og
jafnaðu út yfirborðið. Flysjaðu og taktu
kjarnann úr eplunum og skerðu þau í 0,5 cm
þykkar sneiðar. Plómumauk: Raðaðu
sneiðunum ofan á deigið og fylltu í
kjarnagötin með plómumauki. Settu síðan
inn í heimilistækið.
• Tími í heimilistækinu: 50 mínútur
• Hillustaða: 3
• Eftir bökun skaltu láta kökuna kólna og
fjarlægja bökunarpappírinn.
Gljái:
• 250 ml eplasafi
• 1 poki glær glassúr
• Eftir bökun skaltu láta kökuna kólna og
fjarlægja bökunarpappírinn.
Blandaðu gljáann með eplasafanum og
glassúrpokanum og burstaðu yfir kökuna.
Uppskriftir - Pítsa/baka/brauð
Pítsa
Hráefni í deigið:
• 14 g ger
• 200 ml vatn
• 300 g hveiti
• 3 g salt
• 1 matskeið olía
Hráefni í ofanáleggið:
• 1/2 lítil dós tómatar, saxaðir (um 200 g)
• 200 g ostur, rifinn
• 100 g spægipylsa
• 100 g soðin skinka
• 150 g sveppir (úr dós)
• 150 g fetaostur
• kjarrminta
Annað:
• Bökunarplata, smurð
Aðferð:
Myldu ger í skál og leystu það upp í
vatninu. Blandaðu saltinu saman við hveitið
og bættu því með olíunni í skálina.
Hnoðaðu hráefnið þar til vinnanlegt deig
sem ekki loðir við skálina er komið. Láttu þá
deigið hefast á hlýjum stað þar til það
tvöfaldast að rúmtaki.
ÍSLENSKA 32
Commentaires sur ces manuels